Spænska félagið Atlético Madrid er búið að ganga frá kaupum á serbneska framherjanum Ivan Saponjic frá Benfica. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Saponjic er 21 árs gamall og kemur til með að berjast um framherjastöðuna við Diego Costa og Alvaro Morata en Joao Felix, sem kom einnig frá Benfica á dögunum, getur spilað sem fremsti maður.
Atlético Madrid greiðir um það bil 8 milljónir evra fyrir Saponjic og gerir hann þriggja ára samning.
Saponjic lék með B-liði Benfica á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 6 mörk í 28 leikjum.
Athugasemdir