Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 11. júlí 2019 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Koscielny sagður nálgast Stade Rennais - Lo Celso búinn að semja við Spurs?
Mynd: Getty Images
Nóg er slúðrað þessa daganna og nýjustu sögusagnirnar eru þær að Laurent Koscielny, sem neitaði að fara með Arsenal til Bandaríkjanna, sé við það að semja við franska félagið Stade Rennais. Þær sögusagnir birti Yahoo France.

Koscielny vill losna frítt frá Lundúnafélaginu en hann á ár eftir af samningi sínum við félagið.

Estadio Deportivo segir frá því að Giovani Lo Celso sé búinn að semja um kaup og kjör hjá Tottenham en Spurs er enn í viðræðum við Real Betis um kaupverð. Betis vill fá um 70 milljónir evra og er Daniely Levy, stjórnarformaður Tottenham, að reyna fá spænska félagið til þess að lækka verðmiðann.

Þá segir Record frá því að Manchester United fylgist grannt með Ruben Dias, miðverði Benfica. United fylgist reyndar með mörgum leikmönnum svo erfitt er að lesa í hvort að félagið ætli sér að kaupa leikmanninn í þessum félagaskiptaglugga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner