Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 12. júlí 2019 23:30
Oddur Stefánsson
Nicolo Barella í Inter (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Inter hefur gengið frá kaupunum á Ítalanum Nicolo Barella frá Cagliari fyrir 50 milljónir evra.

Barella mun snúa aftur til Cagliari á láni út næsta tímabil áður en hann leikur fyrir Inter.

Barella skrifar undir fimm ára samning hjá Inter eftir að hafa átt gott tímabil með Cagliari í serie A.



Barella á sjö landsleiki með ítalska landsliðinu og 112 leiki með Cagliari sem er uppeldisfélag Barella.

Cagliari kvaddi Nicolo í tilfinningaþungri tilkynningu.
Athugasemdir
banner