Hinn víðfrægi Zlatan Ibrahimovic var í viðtali hjá Twitter Sports og var spurður út í allt milli himins og jarðar en Zlatan auðvitað ekki með minna sjálfstraust en áður.
Þegar Zlatan var spurður hver ætti að enda í konungssætinu í þættinum Game of Thrones svaraði Zlatan einfaldlega „Ég, ég er nú þegar í því."
Síðan var Zlatan spurður hvaða myllumerki eða hastag hann myndi nota til að lýsa sjálfum sér.
„#Guð, Twitter reikningur ykkar á eftir að springa eftir þetta."
Zlatan hefur ekki slakað á eftir að hann gekk til liðs við LA Galaxy eftir erfið meiðsli hjá Manchester United og hefur sagt í viðtölum að hann sé þar til að vinna.
Athugasemdir