Heimild: Sky Sports
West Ham virðist líklegast til að kaupa Moussa Marega leikmann FC Porto í portúgölsku deildinni.
Leikmaðurinn var mikið orðaður við Hamrana síðasta sumar þar sem Marko Arnautovic var á báðum áttum hvort hann myndi fara frá félaginu.
Marega er með losunarákvæði upp á 27 milljónir punda í samning sínum hjá Porto.
Sky Sports greinir frá því að Marega vill ólmur færa sig í ensku úrvalsdeildina.
Marega skoraði 21 mark í deildinni á síðasta tímabili ásamt því að skora sex mörk í níu Meistaradeildarleikjum.
Athugasemdir