Heimild: Sky Sports
Tottenham er komið í baráttuna um hinn 18 ára gamla William Saliba en Arsenal var búið að semja við Saint Étienne um kaup á leikmanninum.
Arsenal leit út fyrir að vera búið að ganga frá kaupunum á varnarmanninum unga en bónus greiðslur og aukagreiðslur setja strik í reikning Arsenal svo ekki er búið að ganga frá kaupunum.
Tottenham er einnig með áhuga á leikmanninum og hafa boðið Saint Étienne 30 milljónir evra plús bónusar. Í tilboði Tottenham mun Saliba einnig snúa aftur á láni til Saint Étienne.
Saliba var sjálfur búinn að semja við Arsenal en eftir innkomu Tottenham gætu málin breyst.
Saliba lék 16 leiki með Saint Étienn á síðustu leiktíð án þess að skora né leggja upp mark.
Athugasemdir