St. Patrick's Athletic 0 - 4 Chelsea
0-1 Mason Mount ('14 )
0-2 Emerson ('31 )
0-3 Olivier Giroud ('67 )
0-4 Olivier Giroud ('88 )
0-1 Mason Mount ('14 )
0-2 Emerson ('31 )
0-3 Olivier Giroud ('67 )
0-4 Olivier Giroud ('88 )
Frank Lampard og lærisveinar hans í Chelsea unnu St. Patrick's Athletic frá Írlandi 4-0 er liðin mættust í æfingaleik í dag.
Hinn ungi og bráðefnilegi miðjumaður, Mason Mount, skoraði fyrsta mark leiksins á 14. mínútu áður en Emerson Palmieri bætti við öðru á 31. mínútu.
Franski framherjinn Olivier Giroud gerði þá tvö mörk á 67. og 88. mínútu og þar við sat.
Þetta var annar leikur Chelsea á undirbúningstímabilinu en liðið gerði 1-1 jafntefli við Bohemians á dögunum.
Chelsea vs St Patrick 4/0 (13/7/2019) highlights all goals HD 🔥#CFCinDublin pic.twitter.com/BEerX909JI
— Ahmed Abdelaziz (@AhmedAb55020652) July 13, 2019
Athugasemdir