Heimild: Íslendingavaktin
Willum Þór Willumsson, leikmaður BATE Borisov í Hvíta-Rússlandi, var allt í öllu í 4-1 sigri liðsins á Torpedo Zhodino í nágrannaslag.
Willum er 20 ára gamall og gekk til liðs við BATE Borisov fyrr á árinu en hann hefur farið vel af stað með þessu hvíta-rússneska stórveldi.
Hann lagði upp annað mark liðsins með góðri fyrirgjöf á Stanislav Dragan og átti svo stóran þátt í öðru marki.
Hægt er að sjá stoðsendinguna hans hér fyrir neðan.
Willum er partur af U21 árs landsliði Íslands og þykir gríðarlegt efni en hann var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili af Fótbolta.net.
BATE er í efsta sæti deildarinnar með 37 stig eftir 15 leiki.
Athugasemdir