Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. júlí 2019 20:55
Brynjar Ingi Erluson
Jökull með sterka innkomu gegn Sevilla
Jökull Andrésson er gríðarlegt efni
Jökull Andrésson er gríðarlegt efni
Mynd: Reading
Jökull Andrésson, markvörður Reading á Englandi, var frábær í 2-1 tapi liðsins gegn Sevilla í æfingaleik í kvöld en hann spilaði síðari hálfleikinn og átti nokkrar magnaðar vörslur.

Jökull er fæddur árið 2001 og gekk til liðs við Reading fyrir tveimur árum áður en hann skrifaði undir atvinnumannasamning á síðasta ári.

Hann hefur verið að fá tækifæri með aðalliði Reading í sumar og hélt hreinu í fyrsta leik. Hann spilaði síðari hálfleikinn gegn spænska liðinu Sevilla í kvöld og tókst heldur betur að heilla.

Hann átti þrjár magnaðar vörslur í leiknum en þung pressa frá Sevilla varð til þess að liðið tapaði 2-1. Nolito skoraði meðal annars úr víti fyrir Sevilla. Jökull giskaði á rétt horn en vítið var öruggt.

Axel Óskar Andrésson, fyrrum leikmaður Reading og núverandi leikmaður Viking í Noregi er bróðir Jökuls.






Athugasemdir
banner
banner
banner