Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 13. júlí 2019 22:03
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: KFS vann KÁ í markaleik - Kormákur/Hvöt skoraði sex
Kormákur/Hvöt vann sex marka sigur
Kormákur/Hvöt vann sex marka sigur
Mynd: Kormákur/Hvöt
Fjórir leikir fóru fram í 4. deild karla í kvöld en Kormákur/Hvöt vann sex marka sigur á KM á meðan Samherjar unnu Vatnaliljurnar í spennandi leik.

Ágúst Örn Víðisson reyndist hetja Samherja er liðið vann Vatnaliljurnar 3-2. Vatnaliljur komust tvisvar yfir í leiknum áður en Ágúst tók málin í sínar hendur undir lokin og skoraði tvö mörk á tveimur mínútum.

Samherjar eru með 14 stig í 4. sæti en Vatnaliljurnar með 9 stig í 6. sæti.

Kormákur/Hvöt valtaði yfir KM, 6-0. Diego Moreno Minguez gerði tvö mörk á meðan þeir Bjarki Már Árnason, Viktor Ingi Jónsson, Hilmar Þór Kárason og Juan Carlos Dominguez Requena gerðu hin mörkin. Kormákur/Hvöt er í þriðja sæti B-riðils með 20 stig. KM í næst neðsta sæti með 6 stig.

Hörður Ísafirði og Berserkir gerðu 1-1 jafntefli. Kormákur Marðarson kom gestunum yfir áður en Guðmundur Arnar Sveinsson jafnaði með marki úr vítaspyrnu fimmtán mínútum fyrir leikslok. Hörður er með 8 stig í neðsta sæti en Berserkir 14 stig í þriðja sæti.

Þá tókst KFS að vinna KÁ 4-3. Ásgeir Elíasson skoraði tvö mörk fyrir KFS í markaleik. KFS er í fjórða sæti með 9 stig en KÁ með 8 stig í sætinu fyrir neðan.

Úrslit og markaskorarar:

A-riðill:
Samherjar 3 - 2 Vatnaliljur
0-1 Gunnar Reynir Steinarsson ('28 )
1-1 Baldvin Ingvason ('55 )
1-2 Almar Vestmann ('74, sjálfsmark )
2-2 Ágúst Örn Víðisson ('77 )
3-2 Ágúst Örn Víðisson ('79 )

B-riðill:
KM 0 - 6 Kormákur/Hvöt
0-1 Diego Moreno Minguez ('17 )
0-2 Bjarki Már Árnason ('29 )
0-3 Diego Moreno Minguez ('34 )
0-4 Viktor Ingi Jónsson ('45 )
0-5 Hilmar Þór Kárason ('87 )
0-6 Juan Carlos Dominguez Requena ('90 )

C-riðill:
Hörður Í. 1 - 1 Berserkir
0-1 Kormákur Marðarson ('35 )
1-1 Guðmundur Arnar Sveinsson ('76, víti )

D-riðill:
KÁ 3 - 4 KFS
1-0 Patrik Snær Atlason ('7 )
1-1 Eyþór Daði Kjartansson ('28 )
1-2 Tómas Bent Magnússon ('31 )
1-3 Ásgeir Elíasson ('54 )
1-4 Ásgeir Elíasson ('63 )
2-4 Fannar Óli Friðleifsson ('83 )
3-4 Bjarki Þór Þorsteinsson ('90 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner