Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. júlí 2019 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Man Utd æfir með Heerenveen
Cameron Borthwick Jackson í leik með Manchester United
Cameron Borthwick Jackson í leik með Manchester United
Mynd: Getty Images
Enski varnarmaðurinn Cameron Borthwick-Jackson heldur til Hollands á næstu dögum þar sem hann mun æfa með Heerenveen.

Borthwick-Jackson, sem er 22 ára gamall, á eitt ár eftir af samningnum sínum við United en hann var á láni hjá Scunthorpe United á síðasta ári í C-deildinni á Englandi.

Hann spilaði fyrsta leik sinn með aðalliði United árið 2015 en sama ár lék hann tíu leiki í heildina.

Borthwick-Jackson er nú á leið til hollenska úrvalsdeildarfélagsins Heerenveen en hann verður á reynslu í viku.

United á enn möguleika á að framlengja samning hans um eitt ár til viðbótar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner