Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. júlí 2019 11:00
Oddur Stefánsson
De Ligt í læknisskoðun á morgun
Mynd: Getty Images
Svo virðist vera að Juventus sé að ganga frá kaupum á Mathjis de Ligt frá Ajax eftir að leikmaðurinn hefur verið orðaður við öll stærstu félög heimsins.

Kaupin hljóða á 70 milljónir evra en Mino Raiola umboðsmaður De Ligt vill ganga frá kaupunum sem fyrst.

De Ligt mun koma til Turin í kvöld eða í síðasta lagi á morgun til að fara í læknisskoðun hjá meisturunum.

De Ligt var ein skærasta stjarnan á síðasta tímabili og kom meðal annars Ajax áfram með marki gegn Juventus í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner