Evrópumeistaralið Liverpool er búið að lána pólska markvörðinn Kamil Grabara til Huddersfield. Liverpool staðfesti þetta á heimasíðu sinni í gær.
Grabara er 20 ára gamall og lét ljós sitt skína með U21 árs landsliði Póllands á Evrópumótinu í sumar.
Hann skrifaði undir langtímasamning við Liverpool í dag og í leiðinni ákvað félagið að lána hann til Huddersfield út tímabilið.
Huddersfield féll niður úr úrvalsdeildinni og mun því spila í ensku B-deildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir