Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. júlí 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Martinelli skoraði í fyrsta leik með Arsenal
Zech Medley og Niki Jackson í leiknum í nótt.
Zech Medley og Niki Jackson í leiknum í nótt.
Mynd: Getty Images
Colorado 0 - 3 Arsenal
0-1 Bukayo Saka ('13)
0-2 James Olayinka ('29)
0-3 Gabriel Martinelli ('61)

Arsenal rúllaði yfir Colorado 3-0 í æfingaleik sem fór fram í Bandaríkjunum í nótt.

Gabriel Martinelli stimplaði sig inn með marki í sínum fyrsta leik með Arsenal.

Martinelli er 18 ára gamall Brasilíumaður en hann kom frá Ituano FC í sumar.

Arsenal verður í Bandaríkjunum á næstunni en liðið mætir meðal annars Bayern Munchen, Fiorentina og Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner