PSG hefur keypt varnarmanninn Abdou Diallo frá Borussia Dortmund á 30 milljónir evra eða 27 milljónir punda.
Diallo er 23 ára gamall en Dortmund keypti hann frá Mainz á 28 milljónir evra fyrir ári síðan.
Diallo er franskur en hann lék með unglingaliðum Mónakó áður en hann fór til Mainz árið 2017.
Á síðasta tímabili spilaði Diallo 28 leiki í þýsku Bundesligunni en hann er nú á leið til frönsku meistaranna.
Athugasemdir