Síðustu tveimur leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið.
Celtic leiddi einvígið gegn FK Sarajevo frá Bosníu eftir 1-3 útisigur í fyrri leiknum.
Celtic kláraði leikinn í kvöld með 2-1 sigri og fer því áfram 5-2 samanlagt.
Celtic leiddi einvígið gegn FK Sarajevo frá Bosníu eftir 1-3 útisigur í fyrri leiknum.
Celtic kláraði leikinn í kvöld með 2-1 sigri og fer því áfram 5-2 samanlagt.
Í Svartfjallalandi þurfti að framlengja eftir að Sutjeska og Slovan Bratislava gerðu aftur 1-1 jafntefli. Slovan Bratislava frá Slóvakíu komst yfir á 49. mínútu en á 93. mínútu jafnaði Aleksandar Sofranac metin fyrir Sutjeska. Fyrri leikurinn fór 1-1 og því var framlengt.
Ekkert var skorað í framlengingunni og því var gripið til vítaspyrnukeppni. Sutjeska gat tryggt sér sigur með marki úr fimmtu spyrnu sinni en sú fór forgörðum. Bratislava gat jafnað með fimmtu spyrnu sinni en hún fór einnig forgörðum og Sutjaska fer áfram.
Sutjeska Niksic (Svartfjallaland) 1 - 1 Slovan (Slóvakía) Vítaspyrnukeppni: 3-2
0-1 Andraz Sporar ('49 )
1-1 Aleksandar Sofranac ('90 )
Celtic (Skotland) 2 - 1 Sarajevo (Bosnía og Hersegóvína)
1-0 Ryan Christie ('26 )
1-1 Benjamin Tatar ('62 )
2-1 Callum McGregor ('75 )
Athugasemdir