Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 18. júlí 2019 09:37
Magnús Már Einarsson
Llorente skotmark Fiorentina
Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Fernando Llorente gæti verið á leið aftur í Serie A á Ítalíu.

Samningur Llorente hjá Tottenham rann út í sumar og hann er nú að skoða næstu skref.

Fiorentina vill fá þennan 34 ára gamla leikmann í framlínuna fyrir komandi tímabil.

Llorente þekkir vel til á Ítalíu því hann spilaði með Juventus áður en hann fór til Tottenham.

Þar áður var Llorente á mála hjá Athletic Bilbao þar sem hann raðaði inn mörkum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner