Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 19. júlí 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Longstaff lykilmaður í áætlunum Steve Bruce
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, nýráðinn þjálfari Newcastle, mun setjast niður með miðjumanninum Sean Longstaff á næstu dögum þar sem hann mun greina honum frá því að hann verði lykilmaður í sínum áætlunum á næsta tímabili.

Það er Sky Sports sem segir frá þessu.

Longstaff hefur verið orðaður við Manchester United í sumar og er hann sagður spenntur fyrir þeirri tilhugsun, en hann ætlar ekki að þrýsta á Newcastle að hleypa sér þangað.

Talið er að Newcastle vilji fá 50 milljónir punda, en United er ekki tilbúið að borga það mikið fyrir hinn 21 árs gamla Longstaff.

Longstaff kom við sögu í 11 leikjum fyrir Newcastle á síðasta tímabili og stóð hann sig mjög vel er hann spilaði.

Sjá einnig:
Stuðningsmenn Newcastle brjálaðir yfir ráðningunni á Bruce
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner