Frönsku meistararnir í Paris Saint-Germain hafa áhuga á enska vinstri bakverðinum Danny Rose.
Rose fór ekki með Spurs í æfingaferð þar sem hann er að skoða í kringum sig.
Hinn 29 ára gamli Rose gekk í raðir Tottenham árið 2007 frá Leeds og hefur hann verið í ágætis hlutverki hjá Lundúnaliðinu undanfarin ár. Nú gæti hann verið á förum.
Talið er að Tottenham vilji fá í kringum 20 milljónir punda fyrir hann. Auk PSG hefur þýska félagið Schalke 04 einnig áhuga á honum.
Spurs hefur áhuga á Ryan Sessegnon, efnilegum leikmanni Fulham, ef Rose yfirgefur félagið.
Fyrr í vikunni var hægri bakvörðurinn Kieran Trippier seldur frá Tottenham til Atletico Madrid.
Athugasemdir