Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. júlí 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brewster og Oxlade-Chamberlain eins og nýir leikmenn
Oxlade-Chamberlain og Brewster.
Oxlade-Chamberlain og Brewster.
Mynd: Getty Images
Félagaskiptaglugginn hjá Liverpool í sumar hefur verið afskaplega rólegur. Liverpool hefur aðeins keypt einn leikmann í sumar. Sepp van den Berg kom frá PEC Zwolle í Hollandi og er hann hugsaður fyrir U23 ára lið félagsins.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, býst ekki við því að félagið bæti miklu við sig á næstu vikum, en Georginio Wijnaldum, miðjumaður liðsins, bendir á það að tveir "nýir" leikmenn komi til með að styrkja leikmannahópinn.

Liverpool hefur fengið þá Rhian Brewster og Alex Oxlade-Chamberlain úr erfiðum meiðslum.

„Hingað til hefur allt gengið vel. Nokkrir leikmenn sem voru meiddir hafa komið til baka. Það er eins og að fá nýja leikmenn inn," sagði Wijnaldum við Sky Sports.

Oxlade-Chamberlain er 25 ára og kom hann lítið sem ekkert við sögu á síðasta tímabili, eins og hinn 19 ára gamli Brewster sem er mjög spennandi leikmaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner