Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 18. júlí 2019 22:49
Mist Rúnarsdóttir
Júlli: Getum unnið hvaða lið sem er í deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum virkilega góðar fyrstu 30 mínúturnar. Skorum gott mark og vorum sannfærandi. Ég hafði góða trú á þessu og góða tilfinningu fyrir leiknum. Það var vont að fá þetta jöfnunarmark á sig og hvað þá mark númer tvö hjá þeim, rétt fyrir hálfleik,“ sagði Júlíus Ármann Júlíusson, þjálfari Aftureldingar eftir 3-1 tap fyrir FH í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 3 -  1 Afturelding

Lið Aftureldingar mætti kröftugt til leiks og komst yfir í leiknum með marki frá Darian Powell sem kom til liðsins frá Selfossi á dögunum. Hún virðist ætla að verða góð viðbót við sóknarleik Aftureldingar.

„Það er gríðarlegur fengur í henni. Hún er að koma vel inn í þetta. Við erum með vel spilandi lið. Stelpur sem eru góðar í fótbolta og vilja spila fótbolta þannig að ég er bara bjartsýnn á framhaldið.“

Nú er mótið hálfnað og lið Aftureldingar situr í 4. sæti. Liðinu var spáð í neðri hlutanum fyrir mót og hefur því komið þónokkuð á óvart. Júlli segir liðið í ár eitt það besta sem hann hefur þjálfað hjá Aftureldingu og ætlar sér að enda í efri hluta deildarinnar.

„Við ætlum að halda áfram að ná í stig. Við erum með lið sem getur unnið hvaða lið sem er í þessari deild og höfum trú á verkefninu og trú á hvorri annarri.“

„Okkar markmið er skýrt. Við ætlum að vera fyrir ofan miðbikið.“


Nánar er rætt við Júlla í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner