Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. júlí 2019 08:25
Magnús Már Einarsson
Rondon til Dalian Yifang (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Kínverska félagið Dalian Yifang hefur keypt framherjann Salomon Rondon frá WBA.

Rafael Benítez er nýráðinn þjálfari Dalian Yifang en Rondon lék undir stjórn hans á láni hjá Newcastle síðastliðið tímabiil.

Hinn 29 ára gamli Rondon er frá Venesúela en hann skoraði ellefu mörk í 33 leikjum hjá Newcastle.

Rondon kom til WBA sumarið 2015 en hann skoraði 28 mörk í 120 leikjum á tíma sínum hjá félaginu.
Athugasemdir
banner