Fylkir og Selfoss eigast við í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna. Leikurinn er auðvitað í beinni textalýsingu á Fótbolta.net og má nálgast hana hérna.
Í Pepsi Max-deildinni er Selfoss í fjórða sæti og Fylkir í níunda sæti. Selfoss kemur inn í þennan leik með þrjá sigurleiki í röð á bakinu. Það hefur lítið gengið upp hjá Fylki í undanförnum deildarleikjum.
Hjá Fylki koma Thelma Lóa Hermannsdóttir og Marija Radojicic inn í byrjunarliðið frá síðasta deildarleik. Fyrirliðinn Berglind Rós Ágústsdóttir er klár í slaginn.
Hólmfríður Magnúsdóttir er að sjálfsögðu á sínum stað í liði Selfoss. Hún var leikmaður 10. umferðar Pepsi Max-deildarinnar að mati Fótbolta.net.
Leikurinn í kvöld hefst 19:15 og fer fram á Würth vellinum í Árbæ.
Byrjunarlið Fylkis:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Kyra Taylor
4. María Björg Fjölnisdóttir
5. Ída Marín Hermannsdóttir
7. Thelma Lóa Hermannsdóttir
8. Hulda Hrund Arnarsdóttir
9. Marija Radojicic
15. Stefanía Ragnarsdóttir
21. Berglind Rós Ágústsdóttir (f)
22. Sigrún Salka Hermannsdóttir
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir
Byrjunarlið Selfoss:
1. Kelsey Wys (m)
4. Grace Rapp
5. Brynja Valgeirsdóttir
6. Bergrós Ásgeirsdóttir
7. Anna María Friðgeirsdóttir (f)
10. Barbára Sól Gísladóttir
14. Karitas Tómasdóttir
18. Magdalena Anna Reimus
21. Þóra Jónsdóttir
26. Hólmfríður Magnúsdóttir
29. Cassie Lee Boren
Athugasemdir