Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. júlí 2019 13:49
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Greenwood afgreiddi Inter - Man City tapaði
Greenwood skoraði einnig í 4-0 sigri á Leeds á dögunum.
Greenwood skoraði einnig í 4-0 sigri á Leeds á dögunum.
Mynd: Getty Images
Úlfarnir gerðu góða hluti á síðasta tímabili.
Úlfarnir gerðu góða hluti á síðasta tímabili.
Mynd: Getty Images
Manchester City og Manchester United voru að ljúka æfingaleikjum rétt í þessu.

Rauðu djöflarnir mættu Inter í spennandi leik í International Champions Cup þar sem Romelu Lukaku var þó ekki með djöflunum vegna meiðsla. Inter er talið vera afar nálægt því að festa kaup á belgíska sóknarmanninum en þarf fyrst að losa sig við Mauro Icardi.

Táningarnir Mason Greenwood og Tahith Chong hafa verið að standa sig mjög vel á undirbúningstímabilinu. Ole Gunnar Solskjær segir að hinn 17 ára gamli Greenwood verði mögulega í byrjunarliðinu í fyrsta úrvalsdeildarleik tímabilsins gegn Chelsea.

Greenwood skoraði eina mark leiksins og komst nálægt því að bæta öðru við en skot hans fór í slána eftir góðan undirbúning frá Chong.

Man Utd 1 - 0 Inter
1-0 Marlon Greenwood ('76)

Man City mætti Wolves í úrslitaleik Premier League Asia Trophy þar sem ensk úrvalsdeildarlið mætast í æfingakeppni í Asíu.

Ekkert var skorað í venjulegum leiktíma og því blásið til vítaspyrnukeppni þar sem Úlfarnir höfðu betur.

David Silva og Ilkay Gundogan brenndu báðir af á punktinum en vítakeppnin fór 3-2 fyrir Wolves.

Wolves 0 - 0 Man City (3-2 eftir vítaspyrnukeppni)
Athugasemdir
banner
banner
banner