KR 2 - 0 Þór/KA
1-0 Ásdís Karen Halldórsdóttir ('57)
2-0 Betsy Hassett ('83)
1-0 Ásdís Karen Halldórsdóttir ('57)
2-0 Betsy Hassett ('83)
KR er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna eftir frábæran 2-0 sigur á heimavelli gegn Þór/KA.
KR mun keppa við Selfoss í úrslitaleiknum en óhætt er að segja að það bjuggust ekki margir við þeim úrslitaleik fyrir mót.
Staðan var markalaus eftir fjörugan fyrri hálfleik og kom Ásdís Karen Halldórsdóttir Vesturbæingum yfir eftir vel útfærða skyndisókn snemma í þeim síðari.
Akureyringar náðu ekki að svara fyrir sig og innsiglaði Betsy Hassett sigur KR með frábæru marki á 83. mínútu. Þór/KA setti mikla pressu á KR undir lokin en tókst ekki að skapa hættu og lokatölur 2-0 sigur KR.
Athugasemdir