Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 20. júlí 2019 16:21
Orri Rafn Sigurðarson
Bryndís Lára: Búið að vera vandamál hjá okkur
Bryndís Lára í leiknum í dag.
Bryndís Lára í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR og Þór/KA áttust við í undanúrslitum Mjólkurbiakrsins í dag þar sem KR fór með 2-0 sigur af hólmi og eru komnar í úrslit Mjólkurbikarsins

„Þetta var ömurlegt vægast sagt og ógeðslega leiðinlegt að tapa svona leik" Sagði Bryndís Lára markvörður Þór/KA eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 2 -  0 Þór/KA

Eftir markalausan fyrri hálfleik ná KR inn marki á 57. mínútu og virtust taka aðeins yfir leikinn þá. Þær skora svo annað mark 7 mínútum fyrir leikslok og drepa leikinn.

„Þær ná inn marki snemma sem að rotar okkur svoldið og þá komast þær á bragðið og detta í smá gír. Svo kemur smá klúður hjá mér í öðru markinu og þá var þetta svolítið búið þar."

En árangur í sumar hlýtur að vera vonbrigði hjá Þór/KA bæði í deild og bikar. Þó nóg sé eftir af deildinni eru tvö lið þar í sérflokki.

„Það er búið að vera vandamál hjá okkur í síðustu leikjum og höfum ekki verið að skapa okkur eins mörg marktækifæri eins og síðustu ár og við þurfum að laga það." Sagði Bryndís að lokum svekkt eftir að hafa fallið úr leik.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner