Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 22. júlí 2019 00:26
Sverrir Örn Einarsson
Óli Jó: Áttum að vera klókari
Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals
Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var að vonum svekktur þjálfari Vals Ólafur Jóhannesson sem mætti í viðtal við fréttaritara Fótbolta.net að loknum leik Víkings og Vals í kvöld. Valsmenn komust í 0-2 snemma í síðari hálfleik en sú forysta dugði þeim ekki leikinn á enda og áður en yfir lauk höfðu Víkingar jafnað 2-2.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  2 Valur

„Já ég er bara svekktur að vinna ekki þennan leik. Við vorum með góð tök á þessum leik nánast allan tímann og áttum að vera klókari en þetta og sigla þessu heim en niðurstaðan eitt stig.“
Sagði Ólafur um leik sinna manna í kvöld,

Valsmenn eru nýkomnir til baka frá Slóveníu þar sem þeir mættu liði Maribor í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Var þreyta í Valsmönnum og sat ferðalagið í þeim?

„Auðvitað hefur það einhver áhrif en engin áhrif í fótboltaleik ef hugarfarið er rétt svo ég hef svo sem ekki áhyggjur af því.“

Félagaskiptagluggin lokar nú um mánaðarmótin hér á Íslandi.
Gerir Ólafur ráð fyrir einhverjum breytingum fyrir gluggalok?

„Nei ég hef ekki trú á því.“

Sagði Ólafur Jóhannesson en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner