Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. júlí 2019 10:40
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Sverrir mætir Ajax - Kolbeinn gæti mætt Willum
Sverrir Ingi mætir Ajax.
Sverrir Ingi mætir Ajax.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var dregið í 3. umferð í Meistaradeild Evrópu en það er næstsíðasta umferðin áður en kemur að sjálfri riðlakeppninni.

Sverrir Ingi Ingason og félagar í PAOK fá verðugt verkefni en þeir mæta Ajax sem fór alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.

Jón Guðni Fjóluson og félagar í Krasnodar fá líka krefjandi verkefni en þeir mæta Porto.

Kolbeinn Sigþórsson og félagar í AIK gætu mætt Willum Þór Willumssyni og félögum í BATE Borisov ef liðin klára sína andstæðinga í 2. umferðinni.

Leikirnir í 3. umferð
CFR Cluj/ Maccabi Tel-Aviv - Celtic /Nõmme Kalju Sutjeska/APOEL - Dundalk/ Qarabağ
PAOK - Ajax
Saburtalo/GNK Dinamo - Ferencváros/ Valletta
Rauða Stjarnan/HJK Helsinki - The New Saints/FC Kaupmannahöfn
Maribor/AIK - BATE Borisov/Rosenborg
İstanbul Başakşehir - Viktoria Plzeň/Olympiakos
Krasnodar - Porto
Club Brugge - Dynamo Kyiv
PSV Eindhoven/Basel - LASK
Athugasemdir
banner
banner