Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. júlí 2019 13:25
Magnús Már Einarsson
Sandra Mayor og Bianca missa af næstu leikjum Þórs/KA
Sandra Mayor.
Sandra Mayor.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sandra Mayor og Bianca Sierra, lykilmenn Þórs/KA, verða ekki með liðinu í næstu þremur leikjum. Skapti Hallgrímsson greinir frá þessu á Twitter.

Sandra og Bianca eru á leið í leiki með mexíkóska landsliðinu og verða því fjarverandi.

Þær missa af leik Þórs/KA gegn Fylki í Árbænum á morgun, heimaleik gegn ÍBV á laugardaginn og stórleik gegn Breiðabliki fimmtudaginn 1. ágúst.

Þór/KA er í 3. sæti í Pepsi Max-deild kvenna en liðið tapaði gegn KR í undanúrslitum Mjólkurbikarsins um helgina.

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner