Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. júlí 2019 17:15
Magnús Már Einarsson
Stefnir í ÍR á láni (Staðfest)
Stefnir (til hægri) í leik með KÁ í sumar.
Stefnir (til hægri) í leik með KÁ í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
ÍR hefur fengið varnarmanninn Stefni Stefánsson á láni frá Haukum út tímabilið.

Stefnir hefur í sumar spilað með KÁ, varaliði Hauka, í 4. deildinni.

Stefnir, sem er tvíburabróðir Björgvins Stefánssonar framherja KR, hefur auk Hauka og KÁ spilað með Reyni Sandgerði og ÍH á ferlinum.

ÍR hefur unnið tvo leiki í röð í 2. deildinni og situr í 6. sæti í augnablikinu, fjórum stigum frá 2. sæti.

Næsti leikur liðsins er gegn Leikni Fáskrúðsfirði á útivelli á fimmtudagskvöld.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner