Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júlí 2019 13:02
Elvar Geir Magnússon
Chelsea vann Barcelona í Japan
Frank Lampard.
Frank Lampard.
Mynd: Getty Images
Tammy Abraham og Ross Barkley skoruðu fyrir Chelsea þegar liðið vann 2-1 sigur gegn Barcelona í vináttuleik í Japan í dag.

Frank Lampard er tekinn við stjórnartaumunum hjá Chelsea eftir að Maurizio Sarri tók við Juventus.

Sóknarmaðurinn ungi Abraham skoraði fyrsta mark leiksins, fór framhjá markverðinum áður en hann skoraði og varamaðurinn Barkley tvöfaldaði forystuna.

Ivan Rakitic minnkaði muninn fyrir Barcelona í uppbótartíma.

Bandaríski landsliðsmaðurinn Christian Pulisic var í byrjunarliði Chelsea og fékk þessi tvítugi leikmaður lof fyrir sína frammistöðu, hann er nýkominn í raðir félagsins frá Borussia Dortmund.

Antoine Griezmann lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona en hann var keyptur frá Atletico Madrid á 107 milljónir punda.

Griezmann sýndi góð tilþrif og náði vel saman við Ousmane Dembele sem er orðaður við brottför frá Börsungum.


Athugasemdir
banner
banner