Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júlí 2019 14:45
Elvar Geir Magnússon
Langþráð mark Emils kom á afmælisdeginum
Emil Atlason.
Emil Atlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK-ingar eru á hörkusiglingu í Pepsi Max-deildinni en sigur þeirra gegn FH í gær hefur verið mikið í umræðunni.

Emil Atlason skoraði fyrra mark HK í 2-0 sigrinum með skalla. Þetta var ansi langþráð mark hjá þessumsóknarmanni sem fagnaði einmitt 26 ára afmælisdegi sínum í gær.

Emil gekk í raðir HK frá Þrótti síðasta vetur en þetta var hans fyrsta mark í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Hér er hægt að sjá mark Emils.

Erfið meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Emil undanfarin ár en þessi hæfileikaríki leikmaður skoraði 3 mörk í 13 leikjum í Inkasso-deildinni í fyrra fyrir Þróttara.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner