Heimild: Mirror
Liverpool er um þessar mundir í Istanbul að æfa fyrir leik sinn gegn Chelsea þegar liðin mætast á morgun þegar liðin keppa um Ofurbikarinn.
Naby Keita miðjumaður Liverpool er sagður hafa haltrað af æfingu liðsins í Istanbul.
Það var mikið rætt um hvað Liverpool liðið hafi verið heppið með meiðsli á síðustu leiktíð eftir magnað tímabil.
Hins vegar lítur þetta ekki eins vel út þar sem Alison Becker markmaður liðsins fór meiddur útaf gegn Norwich og gæti orðið frá í allt frá fjórum vikum.
Meiðsli Keita eru sögð vera meiðsli í vöðva í kringum hnéð og er ekki vitað hversu alvarlegt máloð er en Keita kom hann ekki við sögu þegar Liverpool sigraði Norwich 4 -1 í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar síðasta föstudag.
Athugasemdir