þri 13. ágúst 2019 21:33
Oddur Stefánsson
Deildabikarinn: Jón Daði skaut Millwall áfram
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Það var einn Íslendingur í enska deildarbikarnum í kvöld þegar Jón Daði Böðvarsson skaut nýju félögum hans í Millwall áfram gegn West Brom.

Jón Daði skoraði sitt fyrsta mark fyrir enska félagið Millwall sem fékk Jón Daða í sínar raðir í sumar.

West Brom 1 - 2 Millwall
1-0 Charlie Austin ('9 )
1-1 Tom Bradshaw ('28 )
1-2 Jon Dadi Bodvarsson ('55 )

West Brom komst snemma yfir með marki frá Charlie Austin en það voru Tom Bradshaw og okkar eigin Jón Daði Böðvarsson sem átti síðasta orðið.

Næsti leikur Millwall er gegn Sheffield Wedensday næstkomandi laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner