Hans-Joachim Watzke, framkvæmdastjóri Borussia Dortmund, segir að stórt félag í Evrópu hafi spurst fyrir um kantmanninn Jordan Sancho í vor.
Hinn 19 ára gamli Sancho hefur vakið athygli með Dortmund en hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.
Hinn 19 ára gamli Sancho hefur vakið athygli með Dortmund en hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.
„Yfirmaður hjá einu af súperfélögunum spurði mig í vor hvort það væri möguleiki (að fá Sancho) en ég sagði honum strax að hann ætti að gleyma því og hann hafði aldrei samband við mig aftur," sagði Watzke.
Sancho var í unglingaliðum Manchester City áður en hann fór til Dortmund árið 2017 til að fá að spila meistaraflokksbolta.
Athugasemdir