Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. ágúst 2019 11:43
Magnús Már Einarsson
Sol Campbell og Hemmi Hreiðars hætta með Macclesfield
Sol Campbell.
Sol Campbell.
Mynd: Getty Images
Sol Campbell, fyrrum varnarmaður Arsenal og Tottenham, hefur ákveðið að hætta sem stjóri Macclesfield í ensku D-deildinni. FJárhagsvandræði eru hjá Macclesfield og óvissa hefur verið í kringum eiganda félagsins.

Hermann Hreiðarsson, fyrrum liðsfélagi Campbell hjá Portsmouth, hefur verið að vinna með Campbell undanfarnar sjö vikur og starfað sem aðstoðarþjálfari hans.

Eftir óvissu undanfarna daga er Campbell hættur og gengur Hermann frá félaginu ásamt sínum fyrrum liðsfélaga.

Campbell bjargaði Macclesfield frá falli úr ensku D-deildinni í fyrra en hann fékk á endanum nóg af fjárhagsvandræðum félagsins og kvaddi leikmenn á æfingu í dag.

Macclesfield hefur byrjað þetta tímabil nokkuð vel. Unnið einn leik og tapað einum í deildinni og slegið Blackpool, sem er í deild fyrir ofan, úr leik í deildabikarnum eftir vítaspyrnukeppni.
Athugasemdir
banner
banner
banner