Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 15. ágúst 2019 21:10
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikarinn: Víkingur í úrslit eftir sigur gegn Blikum
Víkingar fagna eftir leik í kvöld.
Víkingar fagna eftir leik í kvöld.
Mynd: Eyþór Árnason
Mynd: Eyþór Árnason
Víkingur R. 3 - 1 Breiðablik
0-1 Thomas Mikkelsen ('35, víti)
1-1 Óttar Magnús Karlsson ('40)
2-1 Nikolaj Hansen ('45)
3-1 Guðmundur Andri Tryggvason ('69)
Rautt spjald: Elfar Freyr Helgason ('83, Breiðablik)

Víkingur R. fer í úrslitaleik Mjólkurbikarsins eftir góðan sigur gegn Breiðabliki í undanúrslitum í kvöld.

Thomas Mikkelsen kom Blikum yfir með marki úr vítaspyrnu á 35. mínútu. Endursýningar sýndu þó að Thomas var rangstæður þegar brotið var á honum og því átti spyrnan ekki að vera dæmd.

Það gerði þó lítið til því fimm mínútum síðar var Óttar Magnús Karlsson búinn að jafna með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu. Stuðningsmenn Blika, sem og Gunnleifur Gunnleifsson markvörður, voru ekki sáttir með aukaspyrnudóminn. Gulli fékk gult spjald fyrir mótmæli.

Undir lok fyrri hálfleiks náði Nikolaj Hansen að snúa knöttinn framhjá Gulla í markinu eftir góða stungusendingu frá Júlíusi Magnússyni. Staðan því 2-1 fyrir Víkinga eftir fjörugan fyrri hálfleik.

Hasarinn fjaraði út eftir leikhlé og gerðist lítið eftirtektarvert fyrr en á 69. mínútu þegar Guðmundur Andri Tryggvason skallaði fyrirgjöf frá Davíði Erni Atlasyni í netið.

Þetta mark gerði nánast út um leikinn en undir lokin missti Elfar Freyr Helgason stjórn á skapi sínu og fékk rautt spjald fyrir slæma tæklingu. Þegar honum var sýnt rauða spjaldið tók hann það af Þorvaldi dómara og henti í jörðina. Hægt er að búast við leikbanni á Elfar í bikarnum.

Blikar voru þó ekki búnir að gefast upp því undir lokin átti Andri Rafn Yeoman gott skot sem Þórður Ingason varði meistaralega.

Meira var ekki skorað og ljóst að Víkingur mun keppa við FH í úrslitaleik Mjólkurbikarsins 2019!
Athugasemdir
banner
banner