Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   lau 17. ágúst 2019 20:24
Arnar Helgi Magnússon
Hetja Selfyssinga: Ég sá þetta fyrir mér
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þóra Jónsdóttir var hetja Selfyssinga þegar hún skoraði sigurmark liðsins í framlengingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í dag.

Markið kom á 102. mínútu en Þóra átti þá skot fyrir utan teig sem að hafnaði í netinu. Þóra byrjaði á varamannabekknum en kom inná undir lok leiks.

Lestu um leikinn: Selfoss 2 -  1 KR

„Ég var mjög svekkt að byrja ekki leikinn, ég var búin að spila alla leikina fram að þessu. Þjálfarinn tekur þessa ákvörðun og það verður bara að virða það en ég var klár í það að koma inná," sagði Þóra.

Hún bjóst ekki beint við því að skora sigurmarkið þegar hún var að undirbúa sig fyrir að koma inná.

„Ég bjóst kannski ekki beint við því en ég vildi það. Ég var búin að sjá þetta fyrir mér. Ég á að fá boltann þarna og skjóta og skora, ég gerði það bara."

Selfyssingar voru fjölmennir í stúkunni í kvöld og ætlar Þóra að fagna með stuðningsmönnunum og liðinu.

„Það er bara fagna, endalaust, með fólkinu sem að mætti hingað í kvöld.

Viðtalið við Þóru má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner