Selfoss varð í kvöld bikarmeistari kvenna eftir 2-1 sigur á KR í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 1 KR
Fjölmenni safnaðist saman við Pylsuvagns-planið á Selfossi til þess að taka á móti stelpunum og verða vitni af því þegar bikarinn kæmi yfir brúna.
Það var öllu til tjaldað, blys, flugeldar, trúbador og svo fengu stelpurnar lögreglufylgd yfir brúnna.
Það má ætla að það verði vel fagnað á Selfossi í kvöld og fram eftir nóttu.
Hér í myndbandinu að ofan má sjá bikarinn koma yfir brúna og þegar Valli Reynis sjálfur reif sig úr að ofan til þess að fagna stelpunum.
Athugasemdir