Lionel Messi er mættur aftur til æfinga hjá Barcelona og gæti spilað gegn Real Betis á sunnudag.
Messi var sárt saknað þegar Barcelona tapaði fyrir Athletic Bilbao í fyrstu umferð La Liga en hann hefur verið að glíma við meiðsli á kálfa.
Messi var sárt saknað þegar Barcelona tapaði fyrir Athletic Bilbao í fyrstu umferð La Liga en hann hefur verið að glíma við meiðsli á kálfa.
Ousmane Dembele, Luis Suarez og Antoine Griezmann voru í sóknarlínunni í fjarveru Messi en Dembele og Suarez eru nú komnir á meiðslalistann og spila ekki næstu vikurnar.
Messi varð fyrir meiðslunum á fyrsta degi undirbúningstímabilsins en hann lék með Argentínu á Copa America í sumar. Liðið stóð ekki undir væntingum.
Athugasemdir