Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Keflvíkinga undanfarna daga og vikur.
Keflavík leikur í Inkasso-deild karla og er þar í sjötta sæti fyrir leik sinn gegn Þrótti í Laugardal í kvöld.
Keflavík er búið að framlengja við tvo leikmenn sem hafa verið í stóru hlutverki í sumar; Rúnar Þór Sigurgeirsson og Adam Árna Róbertsson.
Rúnar Þór, sem er fæddur 1999, hefur fimm sinnum verið valinn í lið umferðarinnar hér á Fótbolta.net í sumar. Adam Árni, sem er einnig fæddur 1999, er kominn með fimm mörk í sjö deildarleikjum í sumar.
„Það er nóg búið að vera að gera á skrifstofunni síðustu vikur. Við kláruðum langtíma samninga við tvo toppmenn, þá Rúnar Þór og Adam Árna. Við erum afskaplega ánægðir með að hafa tryggt okkur þjónustu þessara stráka til næstu ára enda falla þeir frábærlega að þeirri hugmyndafræði sem þjálfarar og stjórn Keflavíkur vinna eftir. Að byggja á ungum efnilegum leikmönnum til framtíðar," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Athugasemdir