Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 23. ágúst 2019 14:50
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Liverpool og Arsenal
Mynd: Guardian
Það verður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:30 á morgun. laugardag, þar sem Liverpool og Arsenal eigast við á Anfield.

Alisson, markvörður Liverpool, er enn á meiðslalistanum svo Adrian verður áfram í rammanum.

Naby Keita og Nathaniel Clyne eru einnig fjarri góðu gamni en möguleiki er á að Dejan Lovren verði í hóp.

Nicolas Pepe, sem Arsenal keypti frá Lille, mun væntanlega leika sinn fyrsta byrjunarliðsleik.

Mesut Özil og Granit Xhaka eru tæpir fyrir leikinn.

Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.
Athugasemdir
banner
banner