Nýliðar Norwich fá Chelsea í heimsókn í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 11:30 og hafa byrjunarlið beggja liða verið staðfest.
Heimamenn í Norwich tefla fram sama byrjunarliði og lagði Newcastle að velli fyrir viku síðan.
Teemu Pukki er að sjálfsögðu fremsti maður en hann er kominn með fjögur mörk eftir tvo fyrstu úrvalsdeildarleikina.
Frank Lampard gerir tvær breytingar á liðinu sem gerði jafntefli við Leicester City á Stamford Bridge í síðustu umferð.
Tammy Abraham byrjar frammi í stað Olivier Giroud og þá kemur Mateo Kovacic inn á miðjuna fyrir N'Golo Kante sem er fjarri góðu gamni vegna ökklameiðsla.
Norwich: Krul, Aarons, Godfrey, Hanley, Lewis, Trybull, Leitner, Stiepermann, Cantwell, Buendia, Pukki
Varamenn: Fahrmann, Byram, Vrancic, Klose, McLean, Tettey, Srbeny
Chelsea: Arrizabalaga, Emerson, Christensen, Zouma, Azpilicueta, Jorginho, Kovacic, Mount, Pulisic, Abraham, Pedro
Varamenn: Caballero, Alonso, Barkley, Willian, Giroud, Batshuayi, Tomori
Athugasemdir