Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 25. ágúst 2019 19:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvíta-Rússland: Willum nálægt því að skora í sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði BATE Borisov og lék allan leikinn í kvöld gegn Slavia Mozyr. Leikurinn var í úrvalsdeildinni í Hvíta-Rússlandi.

Framherjinn Bojan Dubajic var drjúgur fyrir BATE og gerði hann þrennu. Hann skoraði fyrsta markið á 36. mínútu og bætti við tveimur öðrum á fyrstu 10 mínútum seinni hálfleiks.

Á 69. mínútu gerði Zakhar Volkov fjórða mark BATE og þar við sat. Öruggur sigur BATE staðreynd.

Willum var óheppinn að skora ekki í leiknum en hann átti bæði skot í stöng og slá.

Willum og félagar eru í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum frá toppliðinu. Brest heitir liðið sem er á toppnum, en BATE á leik til góða á Brest.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner