Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 13. september 2019 12:00
Magnús Már Einarsson
Gummi Ben spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur Benediktsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Bergmann Eiðsson var með fjóra rétta þegar hann spáði í leikina í ensku úrvalsdeildinni í síðustu umferð.

SJónvarpsmaðurinn góðkunn Guðmundur Benediktsson spáir í leikina að þessu sinni. Gummi Ben opnaði í vikunni Gummi Ben bar á Tryggvagötu 22 en þar eru leikir sýndir í beinni útsendingu.



Liverpool 3 - 1 Newcastle (12:30 á morgun)
Þetta verður býsna þægilegt fyrir heimamenn. 3-1 verða lokatölur en ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort Newcastle skori fyrsta markið. Það gæti þurft til að vekja Liverpool eftir landsleikjahléið. Liverpool skorar að minnsta kosti þrjú mörk og þau gætu orðið fjögur ef allt er í góðum gír.

Brighton 0 - 0 Burnley (14:00 á morgun)
Þetta veltur allt á Jóa. Ef Jói spilar fer þetta 0-2 fyrir Burnley. Ef Jói spilar ekki þá er þetta ömurlegt 0-0 jafntefli. Ég vona að Jói spili en ég er ekki bjartsýnn.

Wolves 2 - 1 Chelsea (14:00 á morgun)
Úlfarnir eru besta liðið fyrir utan þessi stóru. Tammy Abraham skorar fyrir Chelsea en það dugar ekki til.

Manchester United 2 - 2 Leicester (14:00 á morgun)
Ég ætla að vona að mínir menn í Manchester United séu búnir að æfa vel í landsleijahléinu. Ég er þó ekki sannæfður um að það dugi til sigurs. Liðin deila stigunum. Jamie Vardy verður ljár í þúfu heimamanna.

Sheffield United 1 - 0 Southampton (14:00 á morgun)
Gæti mér verið meira sama um einhvern leik? Svarið er líklega nei. Heimamenn vinna 1-0 með ensku neðri deildar marki. Það verður mikill barningur í teignum, boltinn fer ekki út úr teignum í 20 sekúndur og það endar með risa marki.

Tottenham - Crystal Palace (14:00 á morgun)
Þetta verður frekar þægilegur heimasigur. Ég sá að Wilfried Zaha var að reka umboðsmanninn sinn fyrr að koma sér ekki í burtu. Það er erfitt að hafa svoleiðis leikmenn í liðinu sínu. Því miður fyrir Roy Hodgson og hans menn tapa þeir 3-1 og Harry Kane skorar tvö. Hann framlengir markaskorun sína úr landsleikjahléinu.

Norwich 1 - 4 Manchester City (16:30 á morgun)
Það er ca tveggja deilda munur á þessum liðum. Gabriel Jesus verður aðalmaðurinn, tveggja marka maður og leggur upp eitt líka.

Bournemouth 3 - 3 Everton (13:00 á sunnudag)
Ef að Gylfi spilar allan leikinn fer þetta 3-3. Ef Gylfi fer út af eða spilar ekki þá vinnur Bournemouth þennan leik. Þetta verður galopinn leikur, besti leikur helgarinnar.

Watford 1 - 3 Arsenal (15:30 á sunnudag)
Ég held það sé óeining hjá leikmönnum Watford eftir að Javi Gracia var rekinn og leikmenn séu ósáttir. Arsenal vinnur 3-1.

Aston Villa 0 - 1 West Ham (19:00 á mánudag)
Eftir því sem ég kemst næst þá vinnur West Ham. Pabbi heldur með West Ham og ég ætla að gefa þeim sigur þarna.

Sjá fyrri spámenn:
Aron Einar Gunnarsson (7 réttir)
Sóli Hólm (5 réttir)
Arnór Sigurðsson (4 réttir)
Logi Bergmann Eiðsson (4 réttir)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner