mán 16. september 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eiríkur Raphael ráðinn þjálfari Árborgar
Eiríkur Raphael Elvy.
Eiríkur Raphael Elvy.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Eiríkur Raphael Elvy er tekinn við þjálfun 4. deild liðs Árborgar. Hann segir frá þessu á Instagram.

Eiríkur er fyrrum leikmaður Árborgar, en hann lék einnig með Hamar og Augnablik á meistaraflokksferli sínum. Hann lék síðast með Árborg sumarið 2017.

Eiríkur var aðstoðarþjálfari liðsins í sumar en Árborg hafnaði í þriðja sæti A-riðils 4. deildar karla, en liðinu var einmitt spáð því sæti fyrir sumarið.

Það er ljóst að Eiríkur verður með Árborg næsta sumar og mun hann væntanlega reyna að byggja ofan á árangurinn sem náðist í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner