Danska B-deildarliðið Vejle vann Roskilde 2-0 í er liðin áttust við í deildinni í kvöld.
Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Vejle en var skipt af velli á 86. mínútu.
Hann hefur byrjað vel með Vejle og er með 6 mörk í fyrstu níu leikjum sínum með liðinu í deildinni. Hann er nú markahæstur í deildinni.
Kjartan lagði upp fyrra mark Vejle í kvöld en þá lagði hann boltann fyrir Jacob Schoop. fyrrum leikmann KR, sem skoraði.
Schoop lék með KR sumarið 2015 en hann spilaði 27 leiki, skoraði 2 mörk og lagði upp 5.
Diego Montiel gerði síðara mark Vejle í kvöld og lokatölur því 2-0 en Vejle er í 3. sæti með 17 stig, þremur stigum frá toppsætinu.
Athugasemdir