Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. september 2019 22:36
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Ribery skoraði í jafntefli - Lazio vann Parma
Franck Ribery skoraði fyrir Fiorentina
Franck Ribery skoraði fyrir Fiorentina
Mynd: Getty Images
Lazio vann Parma 2-0 og Atalanta gerði jafntefli við Fiorentina í síðustu tveimur leikjum dagsins í ítalska boltanum.

Ciro Immobile kom Lazio yfir gegn Parma á 8. mínútu áður en Adam Marusic bætti við öðru á 67. mínútu. Lazio er með 7 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar á meðan Parma er með 3 stig.

Atalanta og Fiorentina gerðu þá 2-2 jafntefli. Federico Chiesa skoraði á 24. mínútu fyrir Fiorentina og franski reynsluboltinn Franck Ribery gerði þá annað markið á 65. mínútu.

Josip Ilicic kom Atalanta aftur inn í leikinn með marki á 84. mínútu og það var í verkahring Timothy Castagne að ná í stig fyrir liðið með marki í uppbótartíma.

Atalanta er með 7 stig á meðan Fiorentina er á botninum með 2 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Lazio 2 - 0 Parma
1-0 Ciro Immobile ('8 )
2-0 Adam Marusic ('67 )

Atalanta 2 - 2 Fiorentina
0-1 Federico Chiesa ('24 )
0-2 Franck Ribery ('65 )
1-2 Josip Ilicic ('84 )
2-2 Timothy Castagne ('90 )
Athugasemdir
banner
banner
banner