Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. september 2019 09:45
Magnús Már Einarsson
Þorsteinn Halldórs áfram með Breiðablik (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.

Þorsteinn tók við Breiðabliki haustið 2014 og er nú að stýra liðinu fimmta sumarið í röð. Á þessum árum hefur árangurinn verið magnaður, en Breiðablik hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla undir stjórn Steina.

Þá hefur liðið tvisvar komist áfram í 32ja liða úrslit Meistaradeildarinnar og er nú í tækifæri að komast enn lengra en Blikar leiða 3-2 eftir fyrri leikinn gegn Sparta Prag.

Þá má geta þess að í 89 deildarleikjum á Íslandsmótinu undir stjórn Steina hefur Breiðablik unnið 70 leiki og aðeins tapað sjö. Liðið hefur aldrei hafnað neðar en í öðru sæti í deildinni síðan hann tók við.

„Breiðablik er hæstánægt að hafa náð samkomulagi við Steina um að halda áfram þjálfun kvennaliðsins. Árangurinn talar sínu máli og hans hugsjón að treysta á unga leikmenn smellpassar við það sem Breiðablik vill standa fyrir. Það hefur ekki síður vakið athygli landsliðsþjálfara, þar sem ungum leikmönnum Breiðabliks sem hafa fengið tækifæri með landsliðum Íslands hefur fjölgað mikið eftir að Steini tók við," segir á Blikar.is.
Athugasemdir
banner
banner
banner