Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 14. október 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Vorm á leið aftur til Tottenham
Mynd: Getty Images
Michel Vorm er nálægt því að semja aftur við Tottenham samkvæmt fréttum í heimalandi hans Hollandi.

Hugo Lloris, markvörður Tottenham, verður frá keppni fram yfir áramót eftir að hafa farið úr olnbogalið gegn Brighton á dögunum.

Paulo Gazzaniga verður í markinu næstu mánuðina en Tottenham vantar mann til að vera varamarkvörður.

Hinn 35 ára gamli Vorm fór frá Tottenham þegar samningur hans rann út í sumar.

Vorm má semja við Tottenham þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður þar sem hann er án félags.
Athugasemdir
banner
banner
banner